Viskí
Skólinn
Restaurant Reykjavík í samstarfi við Maltviskífélag Íslands
bjóða upp á einstaka upplifun fyrir alla áhugamenn um Viskí
Í Viskískólanum drekkurðu í þig fróðleik um lífsins vatn, sjálft viskíið.Undir handleiðslu viskífróðra kennara er flakkað um heim viskísins frá hinu gamla til hins nýja svo hver og einn geti fundið sína fjöl.
Að mörgu er að hyggja og heimurinn stór en handleiðsla Viskískólans gerir þátttakendur ferðbúna og færa í töfraheim viskísins.Viskí 101 í Viskískólanum er tilvalin kvöldstund fyrir áhugafólk um viskí og aðra sem vilja snerta á þessum áhugaverða heim
Viskí 101
Viskí 101 er grunnnámskeið Viskískólans og ætlað þeim sem vilja stíga sín fyrstu skref í viskíheiminum en eins þeim er þekkja aðeins til en vilja ná betri tökum á viskísmakki og öðrum grunnatriðum.
Í Viskí 101 horfum við til móðurjarðar viskísins, Skotlands og skoðum hvernig hin skosku viskí skiptast niður eftir svæðum þar sem hvert og eitt hefur sitt sérkenni sem nær aftur um aldir.
Við skoðum einnig muninn á einmöltungum (e. single malt) og blöndum (e. blended) og þeim formum sem þessar framleiðsluaðferðir geta tekið. Samhliða fróðleiknum smökkum við hinar ýmsu tegundir og dýpkum þannig skilninginn, auk þess sem farið er í helstu atriði góðs viskísmakks.
Innifalið í námskeiði er
4 x Viskí tegundir (2cl)
6.700 kr
lágmarksþáttaka í námskeiði er 10 manns

