Hvað er framundan
Jólin á Restaurant Reykjavík 2013
Við höfum ákveðið að hafa opið yfir allar hátíðirnar aftur þetta árið !
Jólahlaðborðin munu byrja í miðjum nóvember mánuði.
Verð á jólahlaðborði um helgar í nóvember og desember: 8.900.- kr á mann.
Smelltu hér til að sjá nánari upplýsingar um jólahlaðborðið.
Á aðfangadagskvöld og jóladagskvöld munum við setja upp glæsilegt veisluhlaðborð.
Verð: 11.900.- kr á mann
Á gamlárskvöld berum við fram glæsilegan Gala Dinner, og bjóðum gestum upp á lifandi tónlist og skemmtun.
Verð: 12.900.- kr á mann
Með víni: 19.900.- kr á mann (Innifalið: Fordrykkur, þrjú glös af sérvöldu víni, dessertvín með eftirréttinum).
Liðnir atburðir
Maí 2013
Reykjavík Walk hefur opnað !
Http://www.reykjavikwalk.is
Mars - Apríl 2013
Vorgleði í Reykjavík !
Andrea Gylfadóttir og Eddi Lár flytja hin undurþýðu lög Sigfúsar Halldórssona við texta Tómasar Guðmundssonar.
Einstaklega girnilegur þriggja rétta matseðill verður á frábæru tilboði:
-Blandaðir sjávarréttir af glæsilegu hlaðborði
-Steikartvenna: Lamb og naut
-Eftirréttahlaðborð með úrvali sætra rétta
Verð aðeins 6.900.- kr á mann

Fermingar 2013
Þegar góða veislu gjöra skal...
... þá leyfir þú fagfólki okkar að sjá um amstrið meðan þú nýtur stundarinnar.
Í gamla Bryggjuhúsinu sem er staðsett í hjarta borgarinnar sjáum við um að skapa það andrúmsloft sem þú óskar þér. Þetta fallega sögufræga hús, sem búið er að endurinnrétta glæsilega, býr yfir miklum sjarma og er tilvalinn staður fyrir fermingar og ýmis tilefni.
Í húsinu er að finna sjö fallega innréttaða sali, stóra og smá. Sá minnsti tekur um 15 manns, sá stærsti um 200 manns.
Hvað vilt þú hafa á boðstólnum?
Við bjóðum uppá glæsileg fermingarhlaðborð, bæði matarhlaðborð og kaffihlaðborð (sjá matseðla hér að neðan). Veislan þín er í öruggum höndum hjá fagfólki okkar. Úrval veislufanga fyrir fermingarveisluna er fjölbreytilegt og henta réttirnir hvort sem er fyrir hádegi, miðjan dag eða að kvöldi til.
Í boði eru tvær gerðir kaffihlaðborða, þ.e. létt kaffihlaðborð og kaffihlaðborð með fermingartertu. Einnig er vinsælt að bjóða gestum í brunch eða í létt hádegisverðarhlaðborð. Tapas og smáréttahlaðborð hentar bæði í hádegis og kvöldveislur sem og létta kvöldverðarhlaðborðið.
Gestum er að sjálfsögðu heimilt að koma með eigin fermingartertu sé þess óskað.
Ekki hika við að hafa samband og sjá hvað við getum gert fyrir þig.
Smelltu hér til að skoða matseðla fyrir fermingar 2014.















