By A Web Design

Hvað gerum við

Veitingarstaður.

Veisluþjónusta.

Funda- og ráðstefnuþjónusta.

Vinaleg þjónusta

Við tökum ávalt vel á móti þér og þínum. Leyfði okkur að stjana við þig á meðan þú nýtur stundarinnar.

Einstakur stíll

Eitt fallegasta og sögufrægasta hús Reykjavíkurborgar, gamla bryggjuhúsið, sem var byggt um 1870.

 

Ferskur matur

Matreiðslumeistarar okkar nota aðeins það besta og ferskasta hráefni sem íslensk náttúra hefur upp á að bjóða.

BrudkaupsbladMoggansApril2013Myndjpg

 

 

 

Opnunartími

  • Sunnudaga - Fimmtudaga: 
  • 11:30 - 14:30 & 17:00 - 22:00
  • Föstudaga og laugardaga
  • 11:30 - 14:30 & 17:00 - 23:00

Salirnir

Saga hússins

Húsnæði Restaurant Reykjavíkur á sér langa sögu.

Það var C.P.A. Koch sem fékk árið 1863 leyfi til að byggja húsið með bryggju að framan, en leyfið fékkst með því skilyrði að gerð yrðu göng gegnum húsið að bryggjunni, aðgengileg almenningi.
Byggingin var þá aðeins á einni hæð, með þaki yfir ganginn að bryggjunni, og var notað sem vöruhús og skrifstofur fyrir sjópóstþjónustu.

Vegna staðsetningarinnar varð húsið að samkomustað sjómanna og annarra sem áttu erindi að bryggjunni.
Einnig var mikið líf á bryggjunni og við húsið í hvert sinn sem skip kom í land með bréfsendingar, sem oft innihéldu fréttir um ástvini handan hafs.
Það má einnig segja að húsið hafi verið einskonar borgarhlið, þar sem flestir sem áttu erindi í borgina frá landsbyggðinni fóru sjóleiðina, ásamt öllum þeim sem komu til landsins frá útlöndum.

Árið 1888 var ákveðið að númera öll hús í Reykjavík, Bryggjuhúsið fékk fyrsta númerið; Vesturgata 2, og var notað sem miðpunktur og öll götunúmer miðuðu út frá húsinu.
Húsið er semsagt bókstaflega í miðpunktur borgarinnar.

Í gegnum tíðina hefur byggingin síðan hýst: Margskonar verslanir, t.d. ÁTVR og vefnaðarvöru verslun, vöruhús, skrifstofuhúsnæði, blaðaútgáfur, kaffihús, skemmtistað, og er í dag eitt af stærstu veitingahúsum Reykjavíkur.

 

1910-1915-

 Þessi mynd var tekin af Bryggjuhúsinu milli 1910 og 1915, þegar það var í eigu H. P. Duus sem notaði húsið aðalega sem vöruhús. Bryggjan var þá kölluð Duus bryggjan.

1910-1914

Mynd tekin á milli 1910 og 1914. Hafnarmenn við vinnu á Duus bryggjunni.
Saltfiskur var fluttur úr uppskipunarbátum og keyrður á handvögnum upp að Bryggjuhúsinu.

alafoss - Wull factory and shop 1976

Mynd tekin 1976, Ullarverksmiðjan Álafoss.
Myndin er í eigu Morgunblaðsins.

16.nov1923

 

 

Share

Um okkur

 Í hjarta borgarinnar er að finna fallegt hús með sögu. Húsnæði Restaurant Reykjavíkur er þekkt sem gamla bryggjuhúsið, en er í dag einn stærsti veitingastaður landsins.

Í húsinu er einn stór aðal salur, ásamt fimm öðrum misstórum sölum sem eru hentugir fyrir alls kyns tilefni, svo sem brúðkaup, ráðstefnur eða kvöldmat í góðra vina hópi.

Við notum aðeins það besta hráefni sem íslensk náttúra hefur upp á að bjóða. Hugmyndaflug matreiðslumeistara okkar sér til þess að kvöldið þitt verði einstök upplifun.

 

Hafðu samband

Tölvupóstur:
Fyrirsögn:
Skilaboð:
Hvað eru 2+2 ?

Twitter

  • @RestaurantRVK: lunch every day from 11:30 http://t.co/QruP4cw6zY
    18 hours ago - View »
  • @RestaurantRVK: Seafood Buffet tonight as usual ! :) It's a 4course meal for only 5.750 isk per person: Soup, appetizers, main courses and sweet desserts!
    4 days ago - View »
  • @RestaurantRVK: A little something about our restaurant http://t.co/797h5Mr9CR
    4 days ago - View »