ferm14

Opnunartími

  • Sunnudaga - Fimmtudaga: 
  • 17:00 - 22:00
  • Föstudaga og laugardaga
  • 17:00 - 23:00

Saga hússins

Click here for an English version of this article

 

Húsnæði Restaurant Reykjavíkur á sér langa sögu.

Það var C.P.A. Koch sem fékk árið 1863 leyfi til að byggja húsið með bryggju að framan, en leyfið fékkst með því skilyrði að gerð yrðu göng gegnum húsið að bryggjunni, aðgengileg almenningi.
Byggingin var þá aðeins á einni hæð, með þaki yfir ganginn að bryggjunni, og var notað sem vöruhús og skrifstofur fyrir sjópóstþjónustu.

Vegna staðsetningarinnar varð húsið að samkomustað sjómanna og annarra sem áttu erindi að bryggjunni.
Einnig var mikið líf á bryggjunni og við húsið í hvert sinn sem skip kom í land með bréfsendingar, sem oft innihéldu fréttir um ástvini handan hafs.
Það má einnig segja að húsið hafi verið einskonar borgarhlið, þar sem flestir sem áttu erindi í borgina frá landsbyggðinni fóru sjóleiðina, ásamt öllum þeim sem komu til landsins frá útlöndum.

Árið 1888 var ákveðið að númera öll hús í Reykjavík, Bryggjuhúsið fékk fyrsta númerið; Vesturgata 2, og var notað sem miðpunktur og öll götunúmer miðuðu út frá húsinu.
Húsið er semsagt bókstaflega í miðpunktur borgarinnar.

Í gegnum tíðina hefur byggingin síðan hýst: Margskonar verslanir, t.d. ÁTVR og vefnaðarvöru verslun, vöruhús, skrifstofuhúsnæði, blaðaútgáfur, kaffihús, skemmtistað, og er í dag eitt af stærstu veitingahúsum Reykjavíkur.

 

1910-1915-

 Þessi mynd var tekin af Bryggjuhúsinu milli 1910 og 1915, þegar það var í eigu H. P. Duus sem notaði húsið aðalega sem vöruhús. Bryggjan var þá kölluð Duus bryggjan.

1910-1914

Mynd tekin á milli 1910 og 1914. Hafnarmenn við vinnu á Duus bryggjunni.
Saltfiskur var fluttur úr uppskipunarbátum og keyrður á handvögnum upp að Bryggjuhúsinu.

alafoss - Wull factory and shop 1976

Mynd tekin 1976, Ullarverksmiðjan Álafoss.
Myndin er í eigu Morgunblaðsins.

16.nov1923

 

 

Share

Hafðu samband

Tölvupóstur:
Fyrirsögn:
Skilaboð:
Hvað er venjuleg manneskja með mörg augu?