Jólahlaðborðin okkar eru borin fram alla
föstudaga og laugardaga til 13.desember.
Allt sem hugurinn girnist
Það líður að aðventunni og við erum þegar farin að undirbúa eitt glæsilegasta jólahlaðborð sem sést hefur í Reykjavík. Veisluborðin munu svigna undan girnilegum og gómsætum kræsingum.
Við höldum í góðar hefðir ásamt því að bæta spennandi nýjungum við. Útkoman er einstaklega glæsileg og stendur svo sannarlega undir því að bjóða upp á ,,allt sem hugurinn girnis"!
Á hinu sögufræga húsnæði Restaurant Reykjavíkur hafa verið gerðar gagngerar endurbætingar. Húsakynnin verða svo sett í ógleymanlegan jólabúnin fyrir hátíðirnar. Þannig bjóðum við dýrindis jólahlaðborð í einstaklega glæsilegu umhverfi. Við löðum fram sannan jólaanda og hjartanlega tilhlökkun fyrir hátíðirnar í einstakri stemningu á Restaurant Reykjavík.
Eyjólfur Kristjánsson kemur þér í jólaskapið
Hinn landskunni tónlistarmaður, Eyjólfur Kristjánsson, verður jólagestur á Restaurant Reykjavík á aðventunni. Eyjólfur mun laða fram einstaka stemningu með ljúfum tónum og glæða húsið notalegheitum og skemmtilegum hátíðaranda eins og honum einum er lagið.
Fjölbreyttir veislusalir
Við bjóðum upp á fimm mismunandi veislusali fyrir hópa, frá 20 að 200 manns.
Hafðu samband
Missið ekki af einstakri upplifun, veldu dagsetningu sem hentar og hafðu samband í síma 551-7759 eða á tölvupósti: This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.



