Salirnir
Glæsilegir salir í sögufrægu húsnæði í hjarta Reykjavíkurborgar
Sértu að íhuga veislusali er þér velkomið að líta við og skoða nánar þá sali sem eru í boði.
1. hæð - Aðalsalurinn
Stærð: Allt að 200 manns í sitjandi veislu, fleiri í standandi móttöku.
Stór, bjartur og fallegur salur sem hefur nýlega verið gerður upp.
Hentugur fyrir ýmis tilefni hvort sem sitjandi veisur eða móttökur.
Í salnum er fullbúinn bar, flygill og glæsileg aðstaða fyrir hlaðborð. Gengið er inn í salinn af glæsilegum sólpalli.
Kjallari - Koníaksstofan
Stærð: Sæti fyrir 40-50, fleiri komast fyrir standandi
Einstaklega fallegur og huggulegur salur. Glæsilegur fullbúinn bar, leðursófasett og mahóní húsgögnum.
Sérstaklega hentug fyrir standandi móttökur með léttum veitingum.
2. hæð - Brúni salurinn
Stærð: Allt að 70 manns í sitjandi veislu, fleiri í standandi móttöku.
Bjartur og fallegur salur sem er nýlega búið að gera upp.
Mjög hentugur fyrir standandi móttökur eða sitjandi veislur.
Í salnum er fullbúinn bar, píanó og hægt er að hafa sófahorn sé þess óskað.
2. hæð - Blái salurinn
Stærð: Allt að 35 manns í sitjandi veislu, fleiri í standandi móttöku.
Lítill fallegur salur. Mjög hentugur fyrir fundi og einnig hentugur fyrir litlar
veislur eða hópa.
Í þessum sal eru gestir alveg út af fyrir sig.
2. hæð - Rauði salurinn
Stærð: Allt að 16 manns í sitjandi veislu.
Fallegur rauður salur hentugur fyrir litla hópa eða fundi.
Í þessum sal eru gestir alveg út af fyrir sig.
2.hæð - Græni salurinn
Stærð: Allt að 80-100 manns í sitjandi veislu, fleiri í standandi móttöku.
Bjartur og fallegur salur með aðstöðu fyrir mini bar. Mjög hentugur bæði fyrir veislur og fundi.
Í þessum sal eru gestir alveg út af fyrir sig.
3. hæð - Inghóll / Kabarett salurinn
Stærð: Allt að 140 manns í sitjandi veislu, mun fleiri í standandi móttöku.
Salurinn er tvískiptur, venjulega er setið aðeins í innri hluta hans sem sést hér á myndinni,og ytri hlutinn notaður sem móttökustaður.
Þar er einnig bar og sófahorn, og gott pláss fyrir hlaðborð eða dansgólf.
Í þessum sal eru gestir með hæðina út af fyrir sig.
















