|
|
|
|
Veislusalir
|
|
|
|
|
|
|
|
Restaurant Reykjavík hefur verið breytt og hefur nú upp á að bjóða fallega innréttað stóra og smáa sali sem henta við öll tækifæri, hvort sem eru fundir, ráðstefnur, móttökur eða veislur. Salirnir eru vel búnir tækjum.
Koníaksstofan og barinn með leðursófasettum er í kjallara. Á fyrstu hæð er salur sem tekur allt að 140 manns í sæti og á annarri hæð eru fjórir salir. Bláisalur tekur allt að 50 manns, Gulisalur allt að 120 manns, Grænisalur allt að 120 manns og Rauðisalur allt að 15 manns. Á þriðju hæð er Inghóll sem tekur allt að 200 manns.
Setjum upp dansgólf í stærri salina sé þess óskað. Og útvegum hljómsveitir eða aðra hljómlist af geisladiskum allt eftir óskum.
Veislur af öllum gerðum
Við sjáum um allar tegundir af veislum og móttökum sama hvert tilefnið er. Þú getur valið um smárétta-, grænmetis- eða sjávarréttahlaðborð; stórveisluborð; úrval af hátíðamatseðlum að eigin vali; austurlenskt veisluborð; fingurfæðismat eða annað í samráði við matreiðslumenn okkar. Allt eftir þínum óskum.
Icebar
Í Restaurant Reykjavík hefur verið opnaður Icebar (Kaldasti barinn á Íslandi). Barinn er innréttaður með jökulís úr Jökulsárlóni og er 6° frost allan sólarhringinn. Tilvalið að koma við á barnum hvort sem er á undan eða eftir mat.
Allir salir Restaurant Reykjavík:
- Koníaksstofan og barinn (70 manns)
- Fyrsta hæð (140 manns)
- Bláisalur (50 manns)
- Gulisalur (120 manns)
- Grænisalur (120 manns)
- Rauðisalur (15 manns)
- Kabarettsalur (200 manns)
Myndir af veislusölum |

Bláisalur, II. hæð
Stærð: 50 manns
Fallega innréttaður salur fyrir öll tækifæri. |

Grænisalur, II. hæð
Stærð: 120 manns
Fallega innréttaður salur fyrir öll tækifæri. |

Gulisalur, II. hæð
Stærð: 120 manns
Fallega innréttaður salur fyrir öll tækifæri. |

Kabarett salurinn III. hæð
Stærð: 300 manns
Salinn er hægt að leigja fyir einkasamkvæmi, s.s brúðkaup, afmæli, árshátíðir og fundi. |

Rauðisalur, II. hæð
Stærð: 15 manns
Fallega innréttaður salur fyrir öll tækifæri. |

Koníakstofan í kjallara
Stærð: 70 manns
Einn íburðamesti bar Reykjavíkur með leðursófasettum og mahóní húsgögnum. |

Koníakstofan | 
Koníakstofan |

I. hæð
Stærð: 140 manns
Fallega innréttaður salur fyrir öll tækifæri. |

Ísbar
6° frost allan sólarhringin.
Tilvalið að koma við á barnum hvort sem er á undan eða eftir mat. |
|
|
|
|
|
|